Hér kemur út í vandaðri útgáfu upptaka af tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands á tónleikunum Manstu gamla daga frá árinu 2006 í hljóði og mynd. Einsöngvarar á tónleikunum voru þær Ragnheiður Gröndal og Eivør Pálsdóttir og samanstóð efnisskrá tónleikanna af lögum eftir gömlu meistarana, þá Jón Múla Árnason, Freymóð Jóhannsson, Sigfús Halldórsson og Alfreð Clausen, meðal annarra.
Kynnir á tónleikunum var þulan ástsæla, Ragnheiður Ásta Pétursdóttir, sem landsþekkt er fyrir störf sín í Ríkistútvarpinu. Tónleikarnir voru einstaklega vel heppnaðir og voru fluttir tvívegis fyrir fullu húsi. Þeir gerðu hina sígildu dægurlagatónlist sem flutt var í nýjum búningi á tónleikunum aðgengilega nýjum áheyrendum og sýndi nýja hlið á söngkonunum ungu, þeim Eivøru og Ragnheiði. Hrafnkell Orri Egilsson sellóleikari útsetti lögin fyrir söngvara og sinfóníuhljómsveit, en Benjamin Pope stjórnaði hljómsveitinni.
Flutningur þeirra Eivarar og Ragnheiðar, sem þá voru að stíga sín fyrstu skref sem flytjendur, var með miklum ágætum og gáfu skemmtilegar kynningar Ragnheiðar Ástu tónleikunum óvenjulegan blæ sem skilaði sér svo sannarlega í ógleymanlegum tónleikum. Tónleikarnir koma nú út á geisladiski og DVD í einni veglegri útgáfu sem hefur verið endurhljóðblönduð svo stemmingin skili sér sem best heim í stofu.


