Þessi klassíska jólaplata Hauks Morthens kom fyrst út árið 1964. Hún hefur verið ófáanleg í fjölda ára en úr því verður nú bætt með þessari vönduðu endurútgáfu. Útsetningar Ólafs Gauks hafa staðist tímans tönn og hér eru margir ástsælustu jólasöngvar þjóðarinnar saman komnir á einum diski í glæsilegri endurútgáfu í bestu hugsanlegu hljómgæðum.
Þessi hæggenga hljómplata frá Hljóðfæraverzlun Sigríðar Helgadóttur býður upp á 20 eldri og yngri jóla- og barnasöngva, sem margir eru í nýstárlegum búningi. Þeir eru sungnir af hinum góðkunna og vinsæla söngvara Hauki Morthens við undirleik hljómsveitar. Útsetningar gerði Ólafur Gaukur. Sum þessara laga eru lítt kunn, en þau eiga vafalaust eftir að verða vinsæl á íslenzkum heimilum. Hugmyndin með þessari nýju hljómplötu er meðal annars sú að sameina heimilisfólkið, unga og eldri, um að syngja og ganga kringum jólatréð. Látið því plötuna á grammófóninn og takið lagið með Hauki Morthens þegar hann syngur hátíð í bæ. Hér sannar hann enn einu sinni hve fjölhæfur söngvari hann er og smekkvís í meðferð texta og laglínu.


