Ísland er einstök geislaplata með feðgunum Garðari Cortes og Garðari Thór Cortes sem báðir eru í meðal ástsælustu söngvara þjóðarinnar. Þetta er fyrsta geislaplatan sem þeir feðgar vinna saman en á hana hafa verið valin helstu sönglög og ættjarðarperlur Íslendinga frá síðustu öld. Meðal laga á plötunni eru: Blítt er undir björkunum, Vísur Vatnsenda-Rósu, Í dag skein sól, Draumalandið, Maístjarnan, Brennið þið vitar, Sjá dagar koma og Ísland ögrum skorið. Einlægur flutningur þeirra Cortes feðga á þessum einstöku söngperlum í nýjum og glæsilegum útsetningum mun ylja hlustendum nær og fjær. Lögin eiga það sameiginlegt að vera eftirlætislög þeirra Garðars og Garðars Thórs, og eiga sérstakan stað í hjörtum margra Íslendinga. Þeir hafa sem listamenn flutt þau oft áður, en oftast aðeins með píanóundirleik. Það þótti tímabært að setja þessi lög í nýjan búning. Efni sönlaganna spanna allt frá vegsömun náttúrdýrðarinnar til baráttunnar við náttúruöflin, og frá ástarljóðum til baráttusöngva.Með þeim feðgum leika félagar úr Sinfóníuhljómsveit Íslands undir stjórn Árna Harðarsonar. Óperukórinn syngur og Sif Tulinius leikur einleik á fiðlu.
Útsetningar voru í höndum Karls Olgeirssonar og Haraldar Vignis Sveinbjörnssonar. Karl Olgeirsson stjórnaði upptökum sem fram fóru í Hörpu og Langholtskirkju í ágúst og september 2011.


