Frostrósir fagna - 10 ára afmælisútgáfa 2CD
1

Frostrósir fagna - 10 ára afmælisútgáfa 2CD

2.899 kr.


Fjöldi:

Til baka

Frostrósir fagna í ár 10. tónleikaárinu og gefa af því tilefni út sérstaka hátíðarútgáfu á tvöfaldri safnplötu með vinsælustu Frostrósalögunum frá upphafi. Í þessari útgáfu syngja allir helstu flytjendur Frostrósa eftirlætisjólalögin í stórglæsilegum útsetningum Karls O. Olgeirssonar tónlistarstjóra Frostrósa, Samúels J. Samúelssonar, Jóns Ólafssonar og fl. Flytjendur eru: Dísella Lárusdóttir, Eivør, Eiríkur Hauksson, Erna Hrönn Ólafsdóttir, Friðrik Ómar, Garðar Thór Cortes, Guðrún Árný, Gunnar Guðbjörnsson, Kolbeinn Ketilsson, Heiða Ólafs, Hera Björk, Jóhann Friðgeir, Jóhanna Vigdís, Margrét Eir, Ragnar Bjarnason, Ragnheiður Gröndal, Ragga Gísla, Regína Ósk, Stefán Hilmarsson, Vala Guðna og Védís Hervör.

Stórhljómsveitir Frostrósa leika og meðal kóra sem eiga hljóðritanir í hátíðarútgáfunni má nefna Karlakór Fóstbræðra, Vox Feminae, Stúlknakór Reykjavíkur, Íslenska gospelkórinn, Gospelraddir Domus Vox, Léttsveit Reykjavíkur, Kammer- og stúlknakór Bústaðakirkju, Skólakór Kársness og Gospelkór Fíladelfíu. Lögin hafa öll verið endurhljóðblönduð og -hljóðjöfnuð og sett saman í veglega afmælisútgáfu.

Frostrósir hafa í fjölda ára verið vinsælasti tónlistarviðburður á Íslandi og hafa aðsóknarmet verið slegin ár eftir ár, nú síðast árið 2010 þegar gestir á tónleikum ársins fóru yfir 27.000 á landsvísu.

Lagaval og listræn stjórnun Frostrósa er í höndum Samúels Kristjánssonar