Frostrósir - Hin fyrstu jól CD+DVD
1

Frostrósir - Hin fyrstu jól CD+DVD

2.999 kr.


Fjöldi:

Til baka

Jólatónleikar Frostrósa slógu enn og aftur öll aðsóknarmet árið 2010 þegar yfir 27.000 gestir sóttu tónleikana um landið allt. Fernir tónleikar voru haldnir í Laugardalshöll og voru lokatónleikarnir teknir upp í hljóði og mynd í háskerpu.

Sviðsmynd og öll umgjörð var að vanda stórglæsileg og hefur flytjendahópurinn aldrei verið fjölmennari, en 250 manns stóðu á sviðinu þegar mest var. Flytjendur á heimsmælikvarða og einstök tónlistardagskrá Frostrósa gerðu þetta að ógleymanlegum tónleikum sem nú koma nú út í heild sinni á geislaplötu og mynddiski, saman í einni veglegri útgáfu.

Flytjendur eru: Eivør, Friðrik Ómar, Garðar Thór Cortes, Hera Björk, Jóhann Friðgeir, Margrét Eir, Ragnheiður Gröndal, Regína Ósk og Stefán Hilmarsson sem syngja ásamt Stórhljómsveit Frostrósa, Karlakór Fóstbræðra, Vox Feminae, Stúlknakór Reykjavíkur, Íslenska gospelkórnum og Gospelröddum Domus Vox. Gestasöngkona er Erna Hrönn Ólafsdóttir.

Tónlistarstjóri er Karl O. Olgeirsson, stjórnandi Árni Harðarson og listrænn stjórnandi Samúel Kristjánsson.