Karlakórinn Fóstbræður syngur hér trúarlega tónlist; sálma, Maríubænir auk annarra fallegra laga sem mörg hver hljóma kunnuglega í eyrum landsmanna.
Titill geisladisksins, Til ljóssins og lífsins, er sóttur í hið fallega ljóð Sigurðar Nordal, Ást, en við það hefur Magnús Þór Sigmundsson samið lag sem hefur öðlast talsverðar vinsældir meðal þjóðarinnar.
Lag Árna Harðarsonar, söngstjóra Fóstbræðra, Stafa frá stjörnu, var samið og hljóðritað fyrir Ríkisútvarpið 1998 og var flutt á jóladag það ár af Fóstbræðrum undir stjórn Árna. Það er þó flutt í nýrri hljóðritun að þessu sinni og sama gildir um öll önnur lög á disknum.
Þóra Einarsdóttir sópransöngkona syngur einsöng með kórnum í Ave Maria eftir Sigvalda Kaldalóns, Pie Jesu eftir Andrew Lloyd Webber og í Drottins hægri hönd eftir Árna Harðarson.
Stjórnandi Fóstbræðra er Árni Harðarson og Jón Stefánsson, organisti Langholtskirkju leikur á orgel.


