Regína Ósk - um gleðileg jól er fjórða sólóplata þessarar ástsælu söngkonu. Þetta er hugljúf plata sem inniheldur ný íslensk jólalög í bland við erlend lög með nýjum íslenskum textum. Víða var leitað fanga og koma lögin úr ýmsum áttum. Á plötunni eru fjögur ný íslensk jólalög, en einnig eru á plötunni lög sem safnast hafa í sarpinn hjá Regínu allt frá barnæsku.
Platan er uppfull af kærleika og var gengið útfrá því við gerð plötunnar að ná hinum sanna jólaanda beint inn í stofu.


