Sacred Arias er glæsileg geislaplata með einum okkar ástsælasta tenórsöngvara. Á plötunni eru gullfallegar perlur úr safni tónbókmenntanna eftir íslensk og erlend tónskáld, sem ýmist eru flutt á frummálinu, á ítölsku eða á ensku.
Lögin á plötunni eru hlýleg og hátíðleg lög sem ylja munu hlustendum árið um kring. Þarna má finna sálma og helgilög í bland við eftirlætislög Jóhanns Friðgeirs. Verkin eru bæði eftir háklassísk tónskáld líkt og Bach og Schubert, en auk þeirra 12 helgilaga sem flutt eru á plötunni, eru tvö sérstök aukalög eftir tvo heimsþekkta dægurtónlistarmenn. Það eru lögin Hallelujah eftir Leonard Cohen og Tears in Heaven eftir Eric Clapton sem eiga vel heima á Sacred Arias.
Útsetningar voru í höndum Karls Olgeirssonar sem einnig stjórnaði upptökum.


