Frostrósir - Hátíðin heilsar - CD+DVD
1

Frostrósir - Hátíðin heilsar - CD+DVD

2.299 kr.


Fjöldi:

Til baka

Jólatónleikar Frostrósa slógu öll met árið 2009 með yfir 22.000 gesti. Fernir tónleikar voru haldnir í Laugardalshöll og voru lokatónleikarnir teknir upp í hljóði og mynd með nýrri háskerputækni.

Sviðsmynd og öll umgjörð var líklega sú glæsilegasta sem sést hafði hér á landi til þess tíma og glæsilegur hópur flytjenda ásamt hinni rómuðu tónlistardagskrá Frostrósa gerði þetta að ógleymanlegum tónleikum.

Tónleikarnir koma nú út í heild sinni á geislaplötu og mynddiski, saman í einni veglegri útgáfu og er þetta í fyrsta íslenska myndefnið sem kemur út í háskerpu.

Flytjendur eru:

  • Friðrik Ómar
  • Garðar Thór Cortes
  • Guðrún Gunnars
  • Hera Björk
  • Jóhann Friðgeir
  • Margrét Eir
  • Ragga Gísla
  • Högni og Sigríður Thorlacius úr Hjaltalín

og:

  • Stórhljómsveit Frostrósa
  • Karlakór Fóstbræðra
  • Vox Feminae
  • Stúlknakór Reykjavíkur
  • Félagar úr Skólakór Kársness
  • Íslenski gospelkórinn
  • Gospelraddir Domus Vox